Bara búin að gleyma

Að ég er víst með bloggsíðu:) Bara steinþegi þessa dagana hvað er í gangiLoL Búið að vera brjálað að gera í hannyrðunum síðustu daga er orðin alger prjónikerling og alvöru meira að segja líka, því þessar alvöru eru alltaf með mörg stykki í gangi og ég líka sko. Er að gera rúmteppi 90x180 og svo er ég líka að prjóna ermar á Kötlu seisei sú gamla algerlega að tapa sérW00t En gaman að þessu bara.

Brynja er komin í páskafrí en lét sig samt hafa það fyrsta frídaginn að vakna kl 08 og fara og keppa í fótbolta með 2. flokki kom svo heim um kl 13 dugleg stelpa. Svo núna er hún í afmæli upp í Giljahverfi rosastuð.

Katla talar nonstop og alltaf eitthvað nýtt, t.d. í morgun þegar við komum á Bubbakot bauð hún hátt og skýrt góðan daginn haha bara svona fullorðins. Grípur allt sem sagt er þannig að það er eins gott að passa sig. Fórum til Hillu í dag og þar léku frænkur sér og voru með þykjustu kaffiboð í næstum klukkutíma.  Svo fór nú að snjóa hérna frekar en ekki, ég sem hélt að það væri "næstum" komið sumar, svona getur maður verið vitlaus vitandi það að við búum á landi sem heitir Ísland, og merkilegt sem maður verður alltaf hissa....

Nenni ekki að skrifa meira ætla að fara að sofa agalega þreytt, þrátt fyrir að hafa sofnað kl 21 í gærkvöldi og því sem næst sofið til morgun ef morgunn er byrjaður kl 06Halo

Ofursjúlli kveður handóður 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Katla sæta spæta, alltaf í stuði ;), góða nótt kerlingarnar mínar

Hildur Móða (IP-tala skráð) 7.4.2009 kl. 22:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband