Íbúð til sölu

Einhver agaleg þreyta í gangi í skrokknum á mér, held reyndar að þetta sé einhver andleg þreyta sem skilar sér svona út í líkamann...legg mig aldrei eftir vinnu, en ég sofnaði á meðan ég var í tölvunni og skreið því inn í rúm en gat ekki sofnað en leið ögn betur á eftir samt. Er að verða stressuð yfir að íbúðin hennar mömmu seljist ekki, ég á að borga fyrstu útborgun 1. júlí pjúff, sé heldur ekki fyrir mér að geta gert það sem ég ætlaði að gera í íbúðinni áður en ég flytti inn, ekki að það skipti svo sem máli get alltaf gert það:) Er að stressast öll upp yfir þessu pjúff...helvítis fokking fokk á vel við núna.

Rosagott að fá stelpurnar heim í gær, Brynja kom um kl 20 og Eyþór renndi svo hér í hlað um kl 22.30 þá steinsvaf litla genið og svaf bara eins og rotuð til kl 06.15. Var samt fyndin, opnaði augun og sagði pabbi, sá svo hver þetta var og augun urðu að undirskálum og svo steinsofnaði hún, ekki alveg að skilja þettaHappy

Var svo voða kát að fara á Holtakot í morgun og kyssti mig og knúsaði í kremju eins og venjulega, fer að sækja hana bráðum..næs.

Keyrði Brynju niður í Brim kl 9 í morgun og verður gaman að heyra hvernig henni fannst fyrsti vinnudagurinn:) Verður ábyggilega þreytt en fer svo á æfingu kl 18 úff úff

Ætla að fara að kaupa eitthvað að éta, frekar dapurt að líta í ísskápinn enda ég bara ein heima um helgina og át nú engin lifandi ósköp...

Ofursjúlli kveður á límingunum 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband