Bensínverð á leið til himna....dúddamía

Fór í morgun að taka b-sín á Polo, þegar ég eignaðist hann fyrst þá fyllti ég hann svona með um 4 þúskalli, núna fylli ég hann fyrir rúmlega 6 þúskall dúddamía, verðið á b-sín er komið í 181 kr segi og skrifa, hvað á að drulla lengi yfir okkur ja það er nú það, óska hér með eftir eigin olíufurstaHappy

Var að enda við að baka nokkur skinkuhorn, gott fyrir Brynjuna mína að taka sér svona með í nesti, ef maður kaupir svona í bakaríi s.s. eitt í bakaríi er eins og 2 af mínum þá kostar þetta bara rúmar 200 kr. En efnið í þessi 32 stk kostuðu svona hvað skal segja kannski 500 kr, já er maður ekki bara alltaf að spara, svei mér þá. En óska alveg líka eftir eins og einum bakaradreng og væri ekki verra ef hráefnið kæmi úr hans hillum en ekki mínumW00t

Fór í morgun í húsasmiðjuna, vantaði svo eina hillu undir viftuna mína, þurfti aðeins að massa hana til, s.s. saga gat í hana miðja og úr einu horninu og svona en ég bjóst nú alveg við svona þúsara, en NEI tæpar 2000 kr fyrir 60 cm breiða plötu sæll bara sjálfur, þannig að ég óska bara eftir eins og einum smíðamanni sem væri til í að láta vinnuna og nokkur tré fylgja með sér dúddamía W00t

Eigum við að ræða eitthvað rafvirkja, fékk einn hér í heimsókn til að draga úr einum vegg tók hann ekki nema 10 mínútur, það kostaði rúman 6000 þús kall, þannig að fyrst ég er farin að óska eftir mönnum, þá óska ég eftir einum stuðbolta til að sjá um þetta fyrir mig líka...Undecided

Ég væri nú líklega of kröfuhörð ef ég færi að óska eftir að einn og sami maðurinn væri þetta allt en auðvitað væri það bara betra, hann gæti líka fengið að nudda á mér axlirnar ef hann yrði ofsalega góður en það yrði nú að vera bara matsatriði.

En svona er nú staðan á Íslandi í dag, afhverju er ég ekki viðhaldið hans Dabba Odds, eða viðhald einhvers annars...þá væri maður bara ekki á landinu einu sinni tja nema þeir væru búnir að gefa skít í mig þar sem ég væri of kröfuhörð...dúddamía það hringsnýst bara allt í kollinum á mér...held ég fari að sofa það er það eina sem enn er ókeypis á Alltáhaus landinu okkar

OFURsjúlli kveður alveg bandvitlaus í dagNinja


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband