Páskafrí með tilheyrandi

jæja þá er komið að enn einu fríinu ekki slæmt það. Er að vinna mv+kv á laugardag en svo aftur í fríi dásemdin ein. 

Hausverkur frá helvíti að hrjá mig, asnaðist til að borða jarðaber hjá Hillu sys í morgun og get því sjálfri mér um kennt, sjónin fór í fokk og allt var vonlaust um tíma, er ögn að skána. Eyþór kom og bauð Kötlunni okkar á rúntinn með sér og kemur einhvern tímann á eftir. Brynjan mín fór að dæma í fótboltaleik þannig að ég klúki hérna ein. Er að dunda mér við að prófa að breyta kjól i peysu, guð má vita hvernig það kemur út á endanum en er mjög gaman engu að síður.

Erum að hugsa um að bruna á Húsavíkina í fyrramálið og koma aftur seinnipartinn. Brynja kemst því miður ekki með því hún á fótboltaleik en fer bara með seinna.

Fór í gær á Holtakot þar sem Katla var að sýna dans með sínum hóp, reyndar vildi hún lítið dansa var miklu betra að kúra í mömmu fangi og gott bara með það.

Komið að því að ég megi byrja að hlaupa aftur og hlakka ég verulega til, ætla að skokka aðeins í kvöld þegar Katla mín er sofnuð, byrja rólega og koma mér í rútínuna aftur. Vildi að ég hefði pláss fyrir boxpúðann minn farin að þurfa að fá útrás fyrir ýmislegt og það er sko verulega góð leið til þess að fá útrás en því miður verður hann bara áfram niður í geymslu.

Keyptum páskaegg í gær og var Katla þvílíkt uppveðruð en við keyptum nr 7 handa Brynju í Nóa og stærsta Bónuseggið handa okkur Kötlu, gefum kannski pabba hennar lítinn bita þar sem hann ætlar að slappa af hjá okkur eitthvað á páskadag::) S.s. ég sef bara og læt hann hafa fyrir henni bwahahhaha

Hætt að röfla um allt og ekkert

OFURsjúlli kveður með hausverk frá helvíti 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband